Description
Stillanlegt hallabretti úr málmi frá Slant er sterkt og fjölbreytt gæða æfingatæki. Það er hannað fyrir fjölbreyttar æfingar frá teygjum og jafnvægisæfingum yfir í djúp framstig eða hnébeygjur. Nýtist í allar “hné yfir tær” æfingar (knees over toes).
Þetta hallabretti er stillanlegt með fjórum mismunandi hallagráðum ( 6°, 12°, 18° og 24°). Svona stillingar bjóða upp á að skala æfingar fyrir byrjendur eða mjög vant íþróttafólk. Býður upp á hagkvæma leið til að vinna gegn bólgumeinum í hnéskeljarsin ( JumpersKnee ) og til að styrkja veikleika í kringum ökkla og/eða hné. Brettið er einnig hægt að nýta til að auka sprengikraft og byggja upp vöðva í fótleggjum. Afar sterkbyggð járngrind sem þolir mikið álag.
Stökkva hærra, hlaupa hraðar og beygja dýpra með hallabretti frá Slant.
Upplýsingar um vöru:
- 4 hallagráður. 6°, 12°, 18° og 24°.
- Sterkbyggð járngrind prófuð fyrir 300kg.
- Gróft yfirborð fyrir betra grip.
- Gúmmítappar undir til minnka líkur á að brettið renni á gólfi.
- 50cm breiður standflötur býður upp á gott bil á milli fótleggja í hnébeygjum.
Stillanlega hallabrettið stenst kröfur fyrir stöðvanotkun. Kemur í flötum kassa með leiðbeiningum.