Description
Ólympíska handlóðastöngin frá York Barbell er öflug stöng sem að vegur 5kg. Stöngin er með fínskorið handfang sem eykur grip. Á stöngina passa öll ólympísk lóð og því er hægt að leika sér með ýmsar lóðasamsetningar.
Krómhúðin á stönginni kemur í veg fyrir að hún ryðgi og heldur útlitinu því góðu lengur en ella. Stöngin er af slíkum gæðum að hún hentar vel í notkun jafnt í æfingastöð sem og heimahúsi.