Description
Æfingaplattarnir frá TRX eru afar vandaðir plattar sem henta í fjölda “functional” æfinga þar sem að reynt er á bæði kvið og aðra vöðva á sama tíma. Með plöttunum getur þú bætt við erfiðleika í hinar ýmsu æfingar eins og t.d. Mountain climber eða notað plattana sem hjálp í t.d. Axlarhreyfingum upp við vegg.
Plattarnir sjálfir eru nógu stórir til þess hendur eða fætur komast auðveldlega fyrir. Mikil vinna fór í að velja réttu efnin sem að koma best út hvað varðar endingu, hljóð og áhrif á gólefni. Fyrir valinu varð Kelvar efnisblanda sem er einstaklega sterk og rennur vel á gólfi, þetta eru plattar sem endast virkilega vel.