Description
Táglennan frá The Toe Spacer er sniðug lausn til að bæta heilbrigða líkamsstöðu. Táglennan hjálpar til að stilla fæturna aftur í náttúrulega lögun eftir notkun á skóm sem að þrengja að tánum. Með þessu styður þú við efri liðamót á við ökkla, hné, mjaðmir og mjóbak.
Fínt er að byrja að nota táglennuna í hámark 10 mínútur á dag yfir netflix eða góðri bók. 10 mínútur hljómar ekki eins og langur tími en þar er bæting á hreyfanleika sem og stöðugleika fótanna byrjuð að eiga sér stað. Þegar fæturnir hafa aðlagast getur þú aukið tímann. Hægt er að vinna sig upp í að vera með táglennurnar á meðan æfingu stendur eða við teygjur.