Description
Hreysti stöngin er eins og nafnið gefur til kynna stjarnan í línunni okkar. Stöngin hefur úthugsaða blöndu eiginleika sem gera hana að frábærri alhliða lyftingastöng sem hentar í jafnt heimahús sem æfingastöðvar. Við framleiðslu á Stönginni var efnisvali og framleiðsluaðferðum hagað þannig að gæði eru á par við topp stangir frá leiðandi merkjum erlendis.
Styrkur
209.000 PSI styrkur stálsins í Stönginni verður til þess að hún er nægilega stíf í kraftlyftingar en á sama tíma er næg sveigja svo að ólympísku lyftingarnar verða mjúkar. Hvað styrk varðar þá er meira ekki alltaf betra en að okkar mati er styrkurinn í Stönginni akkurat nægur til þess að tilfinning sé spot on í sem flestum lyftum.
Snúningur
Stöngin er búin 6 nálarlegum og 4 kúlulegum (auk 2 fóðringa) sem að tryggja að snúningur sé jafn og góður. Þetta er svipuð uppsetning og finna má á keppnisstöngum en flestar stangir á markaðnum eru aðeins búnar fóðringum til þess að spara framleiðslukostnað.
Grip
Gripið á Stönginni er fínskorið svo að gripið haldist gott þó svo að lófar séu sveittir. Fínskurðurinn er milligrófur svo að stöngin hentar vel í bæði æfingar með mörgum endurtekningum sem og þungar lyftingaræfingar með fáum endurtekningum. Miðjan á stönginni sjálfri er án fínskurðs og til hliðanna eru tvöfaldar línur (IWF & IPF spec).
Helstu mál o.fl.
- Þyngd: 20kg
- Lengd: 220cm
- Lengd erma: 42cm
- Styrkur stáls: 209.000 PSI
- Snúningur: 6 nálarlegur, 4 kúlulegur, 2 fóðringar
- Húðun: Zink (ljós eða svört)
- Fínskurður í gripi: Milligrófur
- Fínskurður á miðju: Enginn
- Hliðarlínur: Tvöfaldar (IWF & IPF spec)
- Vikmörk þyngdar: +/-0,1%