Description
FB4 bekkurinn er toppurinn á Hreysti línunni af flötum lyftingabekkjum. Bekkurinn er einhver sá sterkbyggðasti og stöðugasti sem við höfum haft í sölu en hann þolir allt að 450kg. Púðinn á bekknum er þykkur og þéttur og varinn með slitsterku en gripgóðu vinyl efni. Burðarbitinn að framan er einfaldur svo að notandi geti virkilega keyrt undir sig fæturna í bekkpressunni.
Bekkurinn er búinn hjólum á öðrum endanum og handfangi á hinum endanum sem gerir þér auðvelt að trylla honum um. Stærðin á bekknum er eftir IPF standard og hentar því bekkurinn afar vel í kraftlyftingar.
Helstu mál o.fl
- Breidd púða: 30,48cm (12”)
- Lengd á púða: 121,92cm (48”)
- Þykkt á púða: 8cm
- Hæð á bekk: 43,18cm (17”)
- Þyngd: 28,5kg
- Hámarksþyngd (notandi+lóð): 450kg