Description
RT40 hlaupabrettið frá FitCo er vandað bretti sem hannað er fyrir heimahús. Brettið hentar þeim sem vilja taka góðar æfingar heima en brettið nær að hámarki 18km/h. Halla mótorinn í brettinu er vandaður en hann nær allt að 15% halla sem að er frábær kostur fyrir þá sem vilja minnka hraðann og auka álag með hækkun. Brettið er samanbrjótanlegt en það er afar auðvelt að leggja það upp og trylla því svo um á hjólum sem eru á grunni þess.
Hlaupasvæðið á brettinu er 130x46cm sem hentar flestum, leggjalöngum hentar þó bretti með lengra hlaupasvæði. Brettið er búið fjöðrunarkerfi en undir brettinu sjálfu eru fjaðrandi punktar sem að tryggja góða fjöðrun á öllu hlaupasvæðinu. Brettið er hannað til þess að þola að hámarki 120kg notanda.
Mælaborðið á brettinu sýnir allar helstu lykilupplýsingar (tíma, hraða, halla, vegalengd, skref, kaloríur og púls) og býður upp á 11 æfingakerfi sem hægt er að velja á milli. Uppstillingin á upplýsingum er ansi góð en hraði og halli eru alveg sér á báti beggja vegna við upplýsingaskjáinn svo að það er alltaf auðvelt að sjá þessar lykilbreytur.
Tækniupplýsingar:
- Mótor: 2,5 hestöfl DC
- Hlaupasvæði: 130x46cm
- Hraði: 0,8-18km/h, 0,1km/h þrep
- Halli: 0-15% rafstýrður hallamótor
- Mælaborð sýnir: Tíma, hraða, halla, vegalengd, skref, kaloríur og púls
- Skjár: LCD
- Æfingakerfi: 11
- Púlsmæling: Púlsmælar eru á handföngum
- Fjöðrunarkerfi: Já, fjaðrandi punktar
- Hámarksþyngd notanda: 120kg
- Stærð í notkun (LxBxH): 165cm x 79cm x 147,5cm
- Stærð kassa (LxBxH): 178cm x 81,5cm x 35,5cm
- Þyngd brettis: 73kg
- Þyngd í kassa: 84kg
- Ábyrgð: 2ár