Description
RB30 frá FitCo er nett en þægilegt þrekhjól með sætisbaki . Sætisbakið eykur þægindi á æfingu og byggingarlag hjólsins gerir þér auðvelt að setjast á hnakkinn.
Hjólið byggir á segulmótstöðu sem þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Hjólið er búið 4kg kasthjóli sem skilar ágætis mótstöðu. Hámarksþyngd notanda er 110kg.
Mælaborðið á hjólinu sýnir allar helstu upplýsingar svo sem milli hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Mælaborðið gengur fyrir rafhlöðum svo það þarf ekki að stinga hjólinu í samband. Á mælaborðinu er hilla fyrir snjalltæki.
RB30 þrekhjólið er hugsað fyrir þá sem vilja nett þrekhjól með baki sem er nægilega kröftugt til að hægt sé að taka hressilega æfingu.
- Mótstaða: Segulbremsa
- Kasthjól: 4kg
- Lengd sveifu: 17cm
- Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, púls, snúninga á mínútu, hraða og kaloríur
- Æfingakerfi: 0
- Mótstöðustig: 8
- Sætisstillingar: Fram/aftur
- Stillingar á baki: –
- Púlsmælar: Já
- Þarf að tengja við rafmagn: Nei
- Hámarksþyngd notanda: 110kg
- Stærð (LxBxH): 148cm x 61cm x 111cm
- Stærð kassa (LxBxH): 89cm x 33cm x 57cm
- Þyngd tækis: 32kg