Description
FitCo Light Commercial hlaupabrettin eru afar vegleg hlaupabretti sem að henta jafnt öflugum hlaupurum sem og byrjendum. Brettin eru gríðarlega sterkbyggð og þola því meira að segja “semi-pro” notkun eins og t.d. Í minni hótel og þvíumlíkt. Brettið er ekki samanbrjótanlegt en sá eiginleiki er tekinn út til þess að hámarka stöðugleika.
Brettið er með 3 hestafla mótor sem að fleytir því upp í að hámarki 22 km/h. Þessi blanda af öflugum mótor og sterkri grind hækkar hámarksþyngd notanda upp í 180kg. Rafræn hækkun er á brettinu en það getur að hámarki farið í 15% halla. Sérstök fjöðrun er í brettinu sem kallast Elastic-Antishock-System (EAS) en hún minnkar álag á liðmót með því að dreifa álagi á 6 dempara sem fjaðra vel. Beltið sjálft er svo 3mm þykkt og rennur eftir stórum keflum (76mm) sem að tryggja að brettið sjálft endist vel.
Mælaborðið er afar einfalt í notkun en býður þér upp á fjölda æfingamöguleika. Í mælaborðinu er að finna fjölda æfingakerfa en einnig eru flýtihnappar fyrir hraða og halla.
Helstu mál o.fl.
- Mótor: 3 hestafla Continuous duty
- Hlaupasvæði: 152 x 56cm
- Belti: Orthobelt, 3,1mm þykkt
- Bretti: 25mm þykkt, kefli: 75mm
- Hraði: 0,8-22 km/h (í 0,5 km/h skrefum)
- Halli: 0-15% (í 1% skrefum)
- Mælaborð sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, halla, pace, kaloríubrennslu og púls (í handföngum eða með púlsmæli sem fylgir ekki með)
- Æfingakerfi: 12
- Flýtitakkar: 5 fyrir hraða og 5 fyrir halla
- Flýtitakkar á handföngum: Já fyrir bæði hraða og halla
- Hjól á grunni: Já, gera flutning auðveldari
- Fjöðrun: Elastic-Antishock-System (EAS) með 6 dempurum
- Vatnsbrúsahaldarar: Já
- Hámarksþyngd notanda: 180kg
- Stærð uppsett: 215cm lengd – 85cm breidd – 159cm hæð